stjórnleysið

matarfíkillinn í mér er búinn að vera ansi hreint fyrirferðarmikill í sumrinu og ég hef upplifað gamalkunnugt stjórnleysi sem ég kann afskaplega illa við. það vekur upp erfiðar minningar. kveikir í flóknum tilfinningum. ég hef mig samt ekki í neina skynsemi – og það þrátt fyrir frænkuna elskulegustu sem bíður mín með plan allra góðra verka á kantinum og tilbúin með hvatningarræðuna, eða einlæga löngun mína í góðan, hreinan og ljómandi heilbrigðan mat og hreyfinguna margvíslegu.

nú er það spurning. annað hvort læt ég skera á heilahvelin á mér eða sjóða fyrir bragð- og þefskyn (sem virkar þó skammt, ég er minnug þess þegar ég fékk sumarkvefið fyrir einhverju síðan og át og langaði í súkkulaði án þess að finna bragðið af því). eða.

blakið byrjar í september. og reglan er að færast yfir líf mitt, með börnum í gæslu og vinnu yfirvofandi. get ég ekki?

ég ætla, þrátt fyrir kollsteypuna og ruglið, að hlaupa 5k á laugardagsmorgun, með félaga svövu rán mér við hlið, eða allavega bakvið eyrað, því hún ætlar að hlaupa á sama tíma í heimkynnum sínum í wales. ég þarf að fara að hlaupa aftur. mér fannst það svo gaman. og hlaupin eru e.t.v. hvatinn sem ég þarf til að drattast í ræktina og hlusta á frænkuna umræddu því hún veit sínu viti skal ég segja ykkur.

Advertisement

4 Responses to stjórnleysið

  1. við tökum á okkar fíknum og stöndum okkur eins og hetjur þegar rútínan kemst á. ekki spurning :)

  2. Mundu elsku frænka að þetta er allt saman val. Hvað VELUR þú að gera? Ég TRÚI því að þú velur rétt fyrir ÞIG, enginn annar velur fyrir þig. Hvernig VILT þú vera? Skrifaðu MARKMIÐIN þín á blað, hvernig þú ætar að ná þeim, skipulegðu daginn þinn og farðu eftir því. Ég veit að þú hefur heyrt þetta áður og þú hefur gert þetta áður sem segir okkur að þú GETUR svo auðveldlega breytt hugsunarhættinum og farið þá leið sem þú vilt.

    Ekki reyna, heldur gerðu. GETA, ÆTLA, SKAL. Trúðu á sjálfa þig, ég geri það :o)

    Kærleiksknús elsku frænka :o)

  3. Rosalega er frænka þín klár! Eins og talað út úr mínum munni :) Og takk fyrir að vera memm á laugardaginn, ég met það mikils.

  4. Það er erfitt að vera skynsamur þegar maður er með ísskápinn í meters fjarðlægð. Nú þegar rútína kemur er um að gera að grípa tækifærið.
    Það ætla ég að gera.
    Koma sér í rútínuna, skrifa matseðil, gera æfingaplan.
    gó görl gó…

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s