þúsund grömm var það niður, heillin.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
þúsund grömm var það niður, heillin.
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
ó, maður lifandi. komin úr álinu og í íbenholtið, og vettlingarnir fæðast á engri stundu. knitpró er málið, svo undursamlega fallegir pinnar og mjúkir viðkomu. segir sú allra skrítnasta, en svona er þetta.
fórum með miðjuna til doktors í dag, því kvefið virðist vera að síga ofan í hana. það hafði þó ekki gerst, en við þurfum [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
dröslaði mér í blakið í gærkvöldi, þrátt fyrir þungan haus og einhverjar kommur. var með bakköpp-plan að stinga bara af ef æfingin yrði of erfið fyrir semíveika ungfrú, en einhvern veginn náði ég að þrauka í tvo tíma, blakast og taka 260 magaæfingar, 40 armbeygjur, hoppa eins og froskur, ganga eins og kónguló, smassa og [...]
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
ákvað að nýta kvefið og eymdina í prjónaskap og skapaði þennan fyrsta vettling minn á hálftíma áðan. ætlaður dagbjörtu, en eitthvað hafa börn til forna verið fingralöng því hann passar á gabríelu og ég studdist við uppskrift úr hinni sígildu kennslubók á prjónunum, og er hún ætluð 2-3 ára.
núna kúri ég því sitjandi undir heitri sænginni, og [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
það er miður gæfulegt ástandið á okkur mæðgum, en misjafnt þó. allar svona leiðinlega kvefaðar, og ég líklega sýnu mest. höldum samt dampi, og ég stefni ótrauð á blakæfingu kvöldsins. kannski hjálpa hlaupin og hoppin til við að hrista kvefdoðann úr hausnum á mér. er svo án bragð- og lyktarskyns, og það er óneitanlega dauf [...]
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
þetta er þolinmæðisprjón, og reynir sannarlega á úthaldið. og kjóllinn skal vera tilbúinn á unglinginn fyrir hátíðirnar. nú ríður á að hafa hugann við efnið og nýta lausar stundir.
Filed under: Uncategorized | 3 Comments »
rembist eins og rjúpa við staurinn að láta vírusinn ekki ná mér. en höfuðið er þungt og hálsinn sár, og það er vont að hreyfa augun. í gær varð ég skyndilega hrímhvít í vitna viðurvist. ætli hann hafi bitið mig þá?
langar mest til að skríða undir sængina en hugrún fer ábyggilega að vakna, og þá [...]
Filed under: Uncategorized | 2 Comments »
eittþúsundgrömm fokin frá því á mánudag [hljómar svo miklu betur en 1kg].
Filed under: Uncategorized | 4 Comments »
yndisfríð með langömmu fjólu og langafa gunnlaugi.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment »
öðlast nýja merkingu í umræðunni um stofnfjárbréfakaup barna stofnfjáreigenda. græðgin hefur náð nýjum hæðum.
og eitt enn. það var skondið (eða alls ekki) að heyra í fréttum að ofbeldi (annað en kynferðislegt) á börnum hefur aukist síðustu misserin. það var í tilefni þess að dómur féll í máli móður sem hafði barið barnið sitt og hótað því [...]
Filed under: Uncategorized | 5 Comments »